Stofnun Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands (SN) var stofnuð haustið 1993 og hélt sína fyrstu tónleika þann 24. október það ár. Fyrirrennari SN, Kammerhljómsveit Akureyrar, var stofnuð árið 1987 af hljóðfæraleikurum sem flestir voru starfandi kennarar við Tónlistarskólann á Akureyri. Við skólann hafði til margra ára verið starfrækt nemendahljómsveit sem kennarar veittu liðsauka þegar tónleikar nálguðust. Hélt sú hljómsveit tónleika undir nafninu Kammerhljómsveit Tónlistarskólans á Akureyri. Á níunda áratug síðustu aldar varð hlutur kennara og utanaðkomandi hljóðfæraleikara í þeirri hljómsveit sífellt meiri og 1987 var nafni hljómsveitarinnar breytt og tónleikar haldnir í fyrsta skipti undir merkjum Kammerhljómsveitar Akureyrar. Þann 16. október 1988 var stofnað Félag áhugamanna um rekstur Kammerhljómsveitar Akureyrar. Tilgangur félagsins var að vera nokkurskonar bakhjarl hljómsveitarinnar og veita aðstoð við framkvæmd tónleika í sjálfboðavinnu. Hljómsveitin fékk á þessum tíma nokkurn fjárstuðning frá Akureyrarbæ.

Í lögum Félags áhugamanna um Kammerhljómsveit Akureyrar segir m.a. Tilgangur félagsins er
- að stuðla að auknu tónlistarlífi og menningarstarfsemi á Norðurlandi
- að efla starfsemi Kammerhljómsveitar Akureyrar og taka þátt í rekstri hennar
- að stuðla að því að hljómsveitin geti reglulega haldið tónleika með vönduðu og fjölbreyttu verkefnavali.

Kammerhljómsveit Akureyrar óx og dafnaði á næstu árum og hélt fjölmarga tónleika. Það var ljóst frá upphafi að mannafli til að skipa stóra hljómsveit var ekki nægur á Akureyri og nágrenni þannig að oft var leitað eftir liðsauka á höfuðborgarsvæðinu og þá gjarnan fengnir til liðs við hljómsveitina brottfluttir Akureyringar sem voru starfandi tónlistarmenn á höfuðborgarsvæðinu.

Ýmsir hljómsveitarstjórar komu við sögu Kammerhljómsveitar Akureyrar. Sá sem þó oftast hélt um tónsprotann á þessum árum var Roar Kvam sem þá var starfandi kennari og hljómsveitarstjóri við Tónlistarskólann á Akureyri. Þegar Kammerhljómsveitin hafði skipað sér fastan sess í tónlistarlífinu á Akureyri var farið að vinna að því að styrkja stöðu hennar, m.a. með því að afla styrkja frá ríkinu.

Haustið 1993 var nafni Kammerhljómsveitar Akureyrar breytt og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands formlega stofnuð. Var þetta m.a. gert að ráði Ingólfs Ármannssonar menningarfulltrúa Akureyrarbæjar til að auðveldara væri að leita fjárstuðnings frá ríkinu sem á þessum tíma fór að styðja við rekstur hljómsveitarinnar, fyrst beint en síðar í gegnum samning við Akureyrarbæ. Þótti fulltrúum menntamálaráðuneytisins auðveldara að réttlæta fjárframlög til hljómsveitarinnar ef hún bæri nafn sem einskorðaði sig ekki við Akureyri heldur allt Norðurland.

Félag áhugamanna um Kammerhljómsveit Akureyrar hélt aðalfund þann 5. október 1993. Á þeim fundi var lagt til að félagið sameinaðist Tónlistarfélagi Akureyrar og þessi félög í sameiningu kæmu að stofnun Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

Fyrstu tónleikar SN voru haldnir í Akureyrarkirkju 24. október 1993 undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar sem stjórnað hafði tónleikum Kammerhljómsveitarinnar síðasta starfsár hennar. Guðmundur Óli hafði stundað nám í hljómsveitarstjórn í Hollandi og Finnlandi og var á þessum tíma nýráðinn skólastjóri við Tónlistarskólann á Akureyri. Á efnisskrá tónleikanna var forleikur að Töfraflautunni eftir W. A. Mozart og flautukonsert eftir sama höfund og síðan Sinfónía nr. 1 eftir Ludwig van Beethoven. Einleikari á flautu var Martial Nardau. Á þessum tónleikum var hljómsveitin skipuð 38 hljóðfæraleikurum.